September 28, 2023 Uncategorized
Glókollur sást aftur á Ísafirði
Náttúrustofunni barst sú frétt að glókollur (Regulus regulus) hafi sést í nágrenni Jónsgarðar á Ísafirði þann 20. september. Áður hafði sami einstaklingur séð glókoll þann 22. mars síðastliðinn. Þessi örsmái spörfugl er ekki algengur á Vestfjörðum en hefur fundist í litlum fjölda í öðrum landshlutum frá því að varp hans var staðfest á 90 áratugnum. Glókollar kjósa barrskóg eða blandaðan skóg...Read MoreApril 18, 2023 Uncategorized
Náttúrustofa Vestfjarða Árrskýrsla 2022
Ársskýrsla náttúrustofu Vestfjarða er komin út. Í skýrslunni má sjá lýsingar á þeim verkefnum sem unnin voru á stofunni á síðasta ári og má lesa hana á https://nave.snerpill.is/wp-content/uploads/2023/02/Arsskyrsla-2022_minnkud.pdf Starfsárið 2022 var mjög fjölbreytt og fjöldi verkefna unnin, bæði á rannsóknarstyrkjum og í útseldri vinnu. Stór styrkur fékkst fyrir verkefnið vöktun...Read MoreApril 4, 2023 Uncategorized
Vorið er að koma!
Heiðlóa (Pluvialis apricaria) sást á sunnanverðum Vestfjörðum um miðjan dag síðastliðinn sunnudag 2. apríl af Cristian Gallo. Það var kærkomin sjón, því í íslenskum þjóðsögum er sagt að tilkoma þessa vaðfugls marki upphaf vors. Heiðlóa hefur vetursetu í Vestur- og Suður-Evrópu og allt suður til Marokkó. Á sumrin verpir um það bil helmingur heiðlóustofn heimsins á Íslandi sem gerir heiðar...Read MoreMarch 29, 2023 Uncategorized
Stuttar fréttir: Glókullur sést á Ísafirði
Glókollur (regulus regulus) sást á Ísafirði í síðustu viku. Hann er minnsti fugl Evrópu og þá jafnframt minnsti fugl Íslands. Þó að það séu lítil samfélög þessara fugla í kringum Ísland (um 1000-2000 einstaklingar alls), sem kjósa frekar greniskóga, er þetta í fyrsta sinn sem vitað er um hann á norðanverðum Vestfjörðum. Myndirnar voru teknar af Önnsku Ólafsdóttur á Ísafirði. Upplýsingar...Read MoreMarch 15, 2023 Uncategorized
Ársreikningur Náttúrustofu Vestfjarða fyrir árið 2022
Ársreikningar Náttúrustofu Vestfjarða fyrir árið 2022 voru samþykktir á stjórnarfundi miðvikudaginn 1. mars s.l. Velta stofunnar árið 2022 var um 147 milljónir króna. Umsvifin hafa farið vaxandi undanfarin ár og afkoman batnað þannig að tekjur hafa verið nokkru meiri en gjöld. Fjárhagsstaða stofunnar hefur batnað sem því nemur. Árið 1997 var fyrsta rekstrarár Náttúrustofunnar. Síðan þá til...Read MoreFebruary 15, 2023 Uncategorized
Sjógöngufiskar og laxalýs í Jökulfjörðum
Náttúrustofa Vestfjarða kannaði sjávarlúsaálag á villtum laxfiskum í Leirufirði í Jökulfjörðum sumarið 2021 með styrk frá Fiskræktarsjóði. Með því að kanna sjávarlúsaálag á svæði þar sem ekkert laxfiskaeldi er til staðar er hægt að fá fram upplýsingar um náttúrulegt sjávarlúsaálag. Með því að bera saman grunngögn um náttúrulegt sjávarlúsaálag sem safnað er núna við gögn sem safnað verður í...Read MoreJanuary 26, 2023 Uncategorized